top of page
Ragnar Snær

LOG IN 

Ferilskrá

Ég er reyndur leiðbeinandi í íslensku sem öðru máli og samfélagsfræðslu fyrir innflytjendur. Með persónulega reynslu af aðlögun að íslensku samfélagi legg ég áherslu á að skapa námsumhverfi sem styrkir forvitni, sjálfstraust og sjálfstæði nemenda. Ég tel mig þjálfara sem vinnur að því að efla hæfni og þekkingu nemenda með gleði, skipulagi og innblæstri, til að styðja þá við að ná markmiðum sínum á Íslandi.

Ragnar Snær

Our Story in Numbers

7+

ÁRA REYNSLA

Kennsla í íslensku sem öðru máli og samfélagsfræðslu fyrir innflytjendur.

150+

NÁMSKEIÐ

Námskeið fyrir fullorðna, ungmenni, stofnanir og fyrirtæki.

3000+

NEMENDUR

Nemendur með ólíkan bakgrunn, markmið og leiðir inn í íslenskt samfélag.

6500+

KENNSLUSTUNDIR

Reynsla mótuð í kennslustofunni, ekki bara á blaði.

Starfsreynsla

Frá árinu 2019 hef ég kennt íslensku sem annað mál, bæði í eigin rekstri og hjá viðurkenndum fræðsluaðilum. Reynsla mín spannar einkakennslu, hópkennslu og námskeið á vinnustöðum, fyrir nemendur á byrjenda- og framhaldsstigum. Ég byggi kennsluna á því sem skiptir nemandann máli í daglegu lífi: vinnu, samfélagi og samskiptum. Áhersla mín er á að efla sjálfstraust og sjálfstæði samhliða málakunnáttunni.

2024 – núna
Framvegis miðstöð símenntunar ehf.

Síðan 2024 kenni ég íslensku í samstarfi við Framvegis, viðurkenndan fræðsluaðila. Ég sé um byrjendanámskeið á stigum A1–A2 með áherslu á hagnýtt málfar og virka þátttöku nemenda í íslensku samfélagi.

2020 – núna
Ragnar Snær ehf.

Frá árinu 2020 hef ég rekið fræðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í íslenskukennslu og samfélagsfræðslu fyrir innflytjendur, bæði unglinga og fullorðna. Ég hef hannað, skipulagt og leitt námskeið fyrir viðurkennda fræðsluaðila og opinberar stofnanir, meðal annars Mími-símenntun, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS), Austurbrú, Reykjavíkurborg og Vinnumálastofnun. Námskeiðin eru sniðin að bakgrunni og markmiðum hvers nemanda, með áherslu á sjálfstæði og raunhæfa beitingu málsins.

2019 – 2023
​Mímir-símenntun ehf.

Hjá Mími-símenntun, einum stærsta viðurkennda fræðsluaðila landsins, kenndi ég íslensku á stigum 1–4 (A1–A2) fyrir ensku-, rússnesku- og úkraínskumælandi nemendur. Ég leiddi einnig Landnemann, kynningarnámskeið um íslenskt samfélag, réttindi og daglegt líf, á ensku og úkraínsku.

Menntun

Menntun mín liggur þar sem tungumál, kennslufræði og fjölmenning mætast. Frá grunni í alþjóðasamskiptum og þýðingum hef ég sérhæft mig í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands, fyrst með grunndiplóma og síðar BA-gráðu. Núverandi meistaranám í menntun framhaldsskólakennara dýpkar áhersluna á kennslu í fjölmenningarsamfélagi og styður beint við starf mitt sem leiðbeinanda innflytjenda.

2023 – núna
M. Ed. Menntun framhaldsskólakennara

Háskóli Íslands
Kjörsvið: Nám og kennsla í skóla án aðgreiningar í fjölmenningarsamfélagi

Kennaranemi: Fjölbrautaskóli Breiðholts (haust 2024 – vor 2025)

2021
Kennslufræði fyrir leiðbeinendur í samfélagsfræðslu

Mímir-símenntun ehf.

2019 
BA Íslenska sem annað mál

Háskóli Íslands

2014
Grunndiplóma – Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám

Háskóli Íslands

2010
BA Alþjóðasamskipti með sérhæfingu í þýðingum

Chernivtsi National University

bottom of page